contact us


Please don't hesitated to request our latest price list and brochure.

We do our utmost to answer all your questions and provide a personal, professional advice and assistance. 

Use the form on the right to contact us.

 

Laugavegur 62
Reykjavik
Iceland

+354 551 4100

Probably the worlds smallest watch manufacturer. The first and only watch manufacturer in Iceland. All timepieces are designed and assembled by hand in our studio/workshop located in Iceland. In our production we only incorporate high quality Swiss movements, European made parts and components. Every detail of our timepieces has been given the personal attention needed for perfection. The low volume of production gives every timepiece a personal character and a feeling exclusivity.

Fyrirtæki2

Velkomin á fyrirtækja síðu fyrir Íslensku úrin sem fást hjá Gilbert úrsmið.

Fyrirtækjagjafir sem endast alla ævi

101 38mm fyrir hann og 101 32mm fyrir hana


JS Watch Co. Reykjavík og Gilbert úrsmiður hafa síðastliðin 20 ár unnið með fjölda fyrirtækja sem velja íslensk úr sem starfsafmælisgjafir, starfslokagjafir, stórafmælisgjafir og gjafir til viðskiptavina og samstarfsaðila.

Við bjóðum fyrirtækjum Sérkjör og aðstoðum við að útfæra gjöf sem hæfir tilefninu hverju sinni.

Við bjóðum upp á persónulegar áletranir sem gera gjöfina enn eftirminnilegri. Slíkar lausnir henta sérstaklega vel þegar gefa á gjöf sem er í senn vönduð, einstök og með sterka sögu.


Af hverju velja fyrirtæki JS úr

  • Tímalaus gjöf með raunverulegt notagildi sem endist um ókomna tíð

  • Íslensk hönnun og samsetning í miðbæ Reykjavíkur

  • Vönduð hágæða úr með klassískri og tímalausri hönnun

  • Persónulegar sérmerkingar í boði sem gera gjöfina einstaka og eftirminnilega

  • Fjölbreytt úrval íslenskra úra fyrir mismunandi tilefni


Úrin okkar henta vel sem gjafir við ýmis tilefni

  • Starfsafmæli og viðurkenningar fyrir langan og farsælan starfsferil

  • Starfslok og þakkir fyrir vel unnin störf

  • Stórafmæli og sérstök heiðursverkefni

  • Gjafir til góðra viðskiptavina

  • Gjafir til samstarfsaðila og lykilbirgja

  • Gjafir til einstaklinga eða stærri hópa innan fyrirtækja

Úrin henta jafnt dömum sem herrum og eru vönduð gjöf sem sýnir virðingu og þakklæti á eftirminnilegan hátt.


persónulegar sérmerkingar

Algengt er að fyrirtæki velji áletrun á sjálfvindulóð sem sést í gegnum safírgler á bakhlið úrsins.


Algengar útfærslur

  • Áletrun með merki fyrirtækis og texta á sjálfvindulóð

  • Áletrun með nafni, dagsetningu eða stuttum skilaboðum

  • Áletrun á úrkassa einnig möguleg

  • Samvinna um sérlausnir þegar um stærri verkefni er að ræða

Sérmerkingar eru unnar í nánu samráði við viðskiptavin. Við sendum alltaf uppkast til samþykktar áður en áletrun hefst.


Persónuleg þjónusta og útfærsla

Við leggjum áherslu á að gera ferlið einfalt og faglegt fyrir fyrirtæki sem vilja velja úr sem gjöf.

  • Persónuleg ráðgjöf við val á úri sem hentar tilefninu

  • Hönnun og útfærsla sérmerkinga í samráði við fyrirtækið

  • Uppkast að áletrun eða merkingu til samþykktar áður en framleiðsla hefst

  • Falleg tréaskja og ábyrgðarskírteini fylgja með hverju úri


Verð og sérkjör fyrir fyrirtæki

Flest JS Watch Co. Reykjavik úrin eru verðlögð á bilinu um 290.000 til 390.000 krónur, auk þess sem í boði eru nokkrar dýrari gerðir.

Fyrirtæki njóta sérkjara af úrunum okkar. Þar að auki geta fyrirtæki sem eru VSK skráð nýtt sér 24 prósent VSK sem innskatt, sem lækkar raunverulegan kostnað enn frekar.

Þannig geta fyrirtæki keypt vandað íslenskt JS úr sem starfsafmælisgjafir, viðurkenningu eða gjafir til samstarfsaðila eða viðskiptavina.


ARC-TIC Iceland

ARC-TIC úrin kosta frá 34.900 til 69.900 kr.

ARC-TIC úrin eru vönduð úr á góðu verði sem við framleiðum í fjölmörgum útfærslum og litum. Úrin koma í 316L stálkössum með quartz gangverkum og bjóða upp á mikla möguleika þegar kemur að sérframleiðslu.

ARC-TIC úrin okkar henta sérstaklega vel þegar fyrirtæki þurfa gjafir í stærra magni. Við getum sérmerkt úrin með fyrirtækjamerki, texta eða áletrun þannig að úrið verði hluti af sögu og menningu fyrirtækisins.

Fyrirtæki geta farið einföldu leiðina með sérmerkingu á núverandi módelum eða farið alla leið og látið hanna nýtt úr frá grunni sem framleitt er í stærra magni.

Hönnuðir okkar vinna þá í nánu samstarfi við fyrirtækið og þróa útlit úrsins í samræmi við ímynd, liti og stíl fyrirtækisins. Sjá nánar: www.arc-tic.com


Hafðu samband

Ef þú ert að leita að eftirminnilegri gjöf fyrir starfsfólk, viðskiptavini eða samstarfsaðila erum við alltaf tilbúin að ræða hugmyndir og finna lausn sem hentar tilefninu.

Sendu okkur línu og í sameiningu finnum við lausn sem hentar þínu fyrirtæki.

Netfang: info@jswatch.com
Sími: 551 0500